Fara í efni

Gridtech / Þjónusta

Þekking sem tengir kerfin.

Við aðstoðum við hönnun, forritun, stillingar og prófanir á stjórn- og varnarbúnaði í raforkukerfum. Frá fyrstu ákvörðun til afhendingar.

Þjónusta

Þjónustuframboð

01 / Hönnun

Stjórnbúnaður og sjálfvirkni

Hönnun og samþætting stjórnkerfa spennistöðva. Samskipti, eftirlit og sjálfvirkni.

  • Hönnun og forritun stjórnkerfa
  • Samskipti og samþætting búnaðar
  • Sjálfvirkni og undirbúningur SCADA-kerfa

02 / Varnir

Varnarbúnaður og stillingar

Ráðgjöf, hönnun, stillingar og prófanir á varnarbúnaði með rekstraröryggi að leiðarljósi.

  • Hönnun og yfirferð varnarlausna
  • Stillingar á varnarbúnaði
  • Prófanir og sannprófun á virkni

03 / Gangsetning

Prófanir og gangsetning

Markvissar prófanir og sannprófun á virkni kerfa fyrir afhendingu.

  • Undirbúningur og skipulag prófana
  • Prófanir á stjórn- og varnarbúnaði
  • Gangsetning og skráning niðurstaðna

IEC 61850

Sérþekking á stafrænum lausnum.

IEC 61850 er mikilvægur hluti af okkar sérþekkingu. Við nýtum stafrænar lausnir við samþættingu búnaðar, samskipti og merkjavinnu og þróum eigin verkfæri til að styðja við hönnun og prófanir.

Eigin þróun / Verkfæri í verkefnum

Betri yfirsýn. Markvissari vinna.

Við nýtum nýjustu tækni við hönnun og forritun og þróum verkfæri út frá þörfum raunverulegra verkefna. Markmiðið er að einfalda vinnuna, bæta samræmi gagna og skila betri og hagkvæmari lausnum.

01 / SCD Visualizer

Gerum flókin kerfi sýnileg.

SCD-skrá lýsir uppbyggingu og samskiptum IEC 61850-kerfis í spennistöð. SCD Visualizer er vefverkfæri sem Gridtech notar og þróar til að breyta þessum gögnum í sjónræna yfirsýn yfir tæki, tengingar og merkjaflæði. Það auðveldar yfirferð við hönnun, prófanir og gangsetningu.

  • Sjá tæki og hvernig þau tengjast og skiptast á merkjum.
  • Skoða GOOSE-boð, mæligildastrauma og skýrslugjöf (Reports).
  • Finna atriði til yfirferðar og bera saman breytingar milli SCD-útgáfa.
Opna SCD Visualizer

02 / Merkjalisti

Samræmd gögn frá hönnun til prófana.

Gridtech notar og þróar Merkjalista til að halda utan um merki, búnað og gögn verkefna á einum stað. Lausnin tengir merkjavinnu við IEC 61850 og undirbúning SCADA-kerfa og styður skipulega yfirferð frá hönnun til gangsetningar.

  • Skipulag merkja eftir verkefnum, reitum og búnaði.
  • Sameiginlegt merkjasafn og endurnýtanleg sniðmát.
  • Yfirferð, athugasemdir og útflutningur fyrir Excel og zenon.
Ræðum merkjalistalausnina